Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Fimmtudagur, 30. nóvember 2006 klukkan 12:16

Svart-hvít mynd

OlishÍ nótt átti ég að vera að læra en var þess í stað að skoða gamlar bloggfærslur hjá mér. Fann í leiðinni þessa mynd sem ég hafði á heimasíðunni minni hér áður fyrr. Hvaða ímynd var höfundurinn að reyna að koma fram með af sjálfum sér með þessari mynd?

Ég man ekki hvenær hún var tekin en miðað við skeggið þá hefur verið tekin eftir 5. maí 2002. Annars þá gæti líka verið að ég hafi bara verið órakaður þarna. Það á að vera hægt að fá myndina stærri ef smellt er á hana.

Fimmtudagur, 30. nóvember 2006 klukkan 11:26

Gullkorn í síðasta tímanum

Jæja, síðasti tíminn í síðasta kúrsinum.  En gullkorn fengu að fljóta þar “í ljósi Hitlers”og “þessi þýska hefð”.  Þessi önn var sú skemmtilegasta sem ég hef upplifað í Háskóla.  Líka sú langerfiðasta reyndar.

Miðvikudagur, 29. nóvember 2006 klukkan 20:08

Landsbankabögg

Áðan var hringt mig frá Landsbankanum og spurt hvort að ég væri upptekinn.  Ég sagði að ég væri upptekinn.  Klukkutíma seinna hringir Landsbankinn aftur í mig.  Ég skelli á án þess að svara enda upptekinn.  Þá er hringt í heimasímann.  Ef ég var upptekinn fyrir klukkutíma og skelli á þegar þeir hringja í mig þá myndi ég halda að jafnvel tregt fólk gæti fattað að ég sé ekki tilbúinn að spjalla við þau.  Ég svaraði ekki.

Hvers vegna eru þau annars að hringja í mig?  Ég er með bannmerki í Símaskránni.  Ég er reyndar með reikning hjá þeim sem ég setti upp gegn því að fá styrk upp á 15.000 krónur fyrir Gotlandsferðinni (tilboð fyrir þjóðfræðinema).  Nú er ítrekað búið að ýta á eftir þessu en við Eygló höfum ekki fengið þennan pening.  Veit ekki með hina þjóðfræðinema.

Á meðan ég var að skrifa þessa færslu hringdi heimasíminn aftur og ég ætlaði að hella mér yfir hringjarann en síðan var þetta bara mamma Eyglóar þannig að ég sleppti ræðunni.

Miðvikudagur, 29. nóvember 2006 klukkan 13:53

Nafnspjaldabox

Nafnspjald Ég var að fá þessa sendingu frá Glitni. Box undir nafnspjöld. Með þessu fylgdi blað sem stóð á “Til hamingju með titilinn”. Samt er ég ekki alveg að sjá fyrir mér að þessi nafnspjöld komi sér vel. Það stendur nefnilega ekkert á þeim nema nafnið mitt. Ég get mjög auðveldlega sagt fólki hvað ég heiti og þarf ekki spjald undir það. Nafnið mitt er þar að auki eftirminnilegt þannig að flestir muna það. Glitnir hefði fengið meiri plús frá mér ef þarna hefði líka komið fram titillinn sem er verið að óska mér til hamingju með. Óli Gneisti Sóleyjarson: bókasafns- og upplýsingafræðingur. En þó hefði ekki heldur verið mikið gagn af því þar sem ég er þessa daganna voðalega lítið annað en framhaldsnemi í þjóðfræði og geri afskaplega lítið á sviði bókasafns- og upplýsingafræða.

En þetta er nú samt það skemmtilegasta sem ég hef fengið sent í auglýsingaskyni frá banka. Verst er að framan á er lógó bankans og aftan á boxinu er límklessa sem var notuð til að festa það við bréfið.

Miðvikudagur, 29. nóvember 2006 klukkan 2:57

SUF fílar…

Eggert

Hann Eggert er í voðalega vafasömum félagsskap. Samband Ungra Framsóknarmanna fílar hann. Hver ætlar að bjarga honum?

Miðvikudagur, 29. nóvember 2006 klukkan 1:01

Stundaskrá…

Mér lýst vel á stundaskránna mína á næstu önn.  Ef fram fer sem horfir verð ég bara í skóla mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga.  Ég er líka bara í tveimur kúrsum.  Rómarsögu hjá Sverri Jakobs og Eigindlegar rannsóknaraðferðir.  Ekki beinlínis líkir kúrsar.  Síðan verð ég væntanlega skráður í fimm einingar af MA-ritgerðinni minni.  Ég vona innilega að ég geti skrifað eitthvað á önninni.  Hugmyndirnar vantar ekki en ég hef ekki haft mikinn tíma.  Stefni líka á að skrifa eitthvað í jólafríinu.  Klæjar í fingurna.

Þriðjudagur, 28. nóvember 2006 klukkan 22:48

Prófkjör VG

Við vorum að fá bækling frá VG um frambjóðendur í prófkjörinu á laugardaginn. Ekkert var þar sem breytti skoðunum mínum. Fólk virðist vera nokkurn veginn eins og ég gerði ráð fyrir. Hafði líka þegar skoðað vefsíður frambjóðenda. Þar að auki er maður búinn að spjalla við hina og þessa, margir að plotta. Ekki ég náttúrulega…

Þriðjudagur, 28. nóvember 2006 klukkan 22:40

Samúð

Ef það er eitthvað sem ég vildi breyta í fari mínu þá væri það að gera mig hæfari í að tjá samúð með orðum.  Ég svolítið erfitt með það.  Ég á voðalega erfitt með að segja “ég samhryggist” þegar einhver sem ég þekki missir einhvern nákominn sér, aðallega af því að mér finnst þetta vera svo lítils virði þegar ég segi það, hálfformúlukennt.  Sem er reyndar hálfasnalegt af því að ég hugsa ekki þannig þegar fólk segir þetta við mig þegar ég er í sömu sporum.  Mér finnst orðið samhryggjast eiginlega ekki lýsa almennilega því sem ég er hugsa.

Mér þætti í raun betra ef maður segði eitthvað á við “ég finn til með þér”.  Þetta er samt í raun það sem maður er að reyna að segja með orðinu samhryggjast.  Betra þegar maður er nægilega náinn fólki til að taka bara einfaldlega utan um það.  Segir meira en orðin.  Best að blogga núna um eitthvað annað svo að þessi færsla færist neðar á síðuna og lesendur mínir taki ekki eftir henni.

Þriðjudagur, 28. nóvember 2006 klukkan 12:27

Vitleysan í Mogganum

Það virðast ekki vera mikil takmörk fyrir því hvaða vitleysa kemst að í Morgunblaðinu:

Á Íslandi er kristin trú og annað ekki

ÞAR sem ég sé í veffréttum blaðanna að til standi að stofna samtök ýmissa trúfélaga, þá vil ég koma á framfæri eftirfarandi athugasemdum.

Íslenska þjóðin er kristin þjóð og svo hefur verið frá upphafi landnáms. Kristni var síðan ákveðin með lögum á Alþingi árið 1000 - til þess að koma í veg fyrir trúarbragðastyrjöld og stuðla að friði meðal landsmanna - og þau lög gilda enn.

Í stuttu máli sagt: Kristindómurinn er einu trúarbrögðin sem eru lögleg á Íslandi og öll önnur trúarbrögð eru þar með einfaldlega ólögleg, þar með talið búdda-, hindú-, múhameðs- og ásatrú.

Það að kirkjumálaráðuneytið skuli hafa skrásett ólögleg félög er að sjálfsögðu einnig ólöglegt og það er öllum viðkomandi til minnkunar.

Nú, þegar jafnvel sjálf þjóðkirkjan ætlar að binda trúss við ólögleg trúfélög, þá finnst mér augljóst að hin kristna íslenska þjóð verði að taka af skarið og setja biskupinn af, og jafnframt alla þá presta sem hafa svikið þjóðina með þessum hætti.

Tryggvi Helgason, flugmaður.

Ég hef ekkert við þetta að bæta.  Annars hlakka ég til að sjá umsagnir lögfræðinga á þessarri sérstæðu lagatúlkun.

Þriðjudagur, 28. nóvember 2006 klukkan 11:47

Hlynur Hallsson

Hlynur Hallsson lenti í fjórða sæti í leiðbeinandi forvali VG í Norðausturkjördæmi.  Það bögg þar sem hann er sá fulltrúi VG í þessu kjördæmi sem ég hef mesta trú á.

Eldri færslur »