Hnífapör

Ég fann draumahnífapörin í dag…loksins! Og hvar haldiði að ég hafi fundið þau? Í Bónus! Og hvað haldiði að þau hafi kostað? 1599 kr! Þetta voru sem sagt 4 hnífar, 4 gafflar, 4 skeiðar og 4 teskeiðar. Fullkomnlega skapað allt saman, væntanlega af æðri máttarvöldum. Nú getur maður aldeilis farið að halda fancy matarboð…