Lesendur og jól

Ég sé að lesturinn á blogginu mínu hefur stóraukist síðan ég varð einhleyp. Ætli það séu allir vonbiðlarnir sem hafa verið að bíða eftir mér síðustu 8 ár? 😉 En hver sem þið eruð þá er kommentakerfið alltaf opið.

Það vottar orðið fyrir jólatilhlökkun hjá mér. Skrifaði nokkur jólakort í gærkvöldi og það var bara gaman, ekkert sorglegt eins og ég hélt það yrði. Í vikunni ætla ég að klára að skrifa jólakortin og kaupa jólagjafirnar, senda það sem þarf að fara í póst og jafnvel taka svolítið til hjá mér svo ég komi í hreina og fína íbúð eftir jólin (það veltur reyndar á því hversu villt og tryllt partí Óli heldur um jólin hversu hrein íbúðin verður ;))

Lifið heil!