Allt sem við vitum kallar á meira

Þetta finnst mér skemmtilegt lag, hef ekki tekið svo mikið eftir því áður.

Öll okkar leit
virðist staðfesta það
að sprengjan hún sprakk
Enginn veit
hvað hratt því af stað
En hún sneið okkur stakk

Aðeins hugtak
í of stóru mengi
og óendanleika
Óupplýst stak
á alheimsins engi
er illa til reika

Þú lýsir mig upp
lætur mig sjá
ef eitthvað vantar upp á
lýsir mig upp
lætur mig sjá

Í vissri nálægð
við ofbirtu gín
Vakna upp spurningar
Í réttri fjarlægð
gjörbreytist sýn
svör innan seilingar

Allt sem við vitum
kallar á meira
Kannski skynjum við
bráðum hyldýpið
og snúum við

Ljósaskipti – Ný dönsk