Bank bank

Nú ætlar KB banki að skipta um nafn og heita Kaupþing. Nú getur Kaupfélag Borgnesinga andað léttar. Kaupþing ætlar svo fara í kynningarherferð til að kynna nýja nafnið sitt og eyða í það mörgum mörgum milljónum. Hvernig væri að láta frekar viðskiptavini bankans njóta þessara peninga?

Ég þarf að endurskipuleggja bankaviðskiptin mín, enn einu sinni. Held ég haldi mig samt áfram við SPRON og stefni að því að verða ánægðasti viðskiptavinurinn í bankakerfinu!