Afmæli

Ég ætla að halda uppá afmælið mitt. Er bara ekki alveg búin að ákveða hvernig. Þrennt kemur til greina; partý heima, sumarbústaðaferð eða út að borða. Nema að ég geri þetta bara allt saman. Ég er allavega búin að fá frí á afmælisdaginn minn, sem er á föstudegi þetta árið. Mér leiðist aldrei í janúar og febrúar því ég get verið með endalausar spekúlasjónir varðandi afmælið mitt.

En það er annað afmæli sem er fyrst á dagskrá. Óli á afmæli á sunnudaginn. Hann verður 28 ára gamall og getur því óhræddur hafið feril sinn sem rokkstjarna. Vinir og velunnarar eru velkomnir í kaffiboð (ef þið verðið stillt bjóðum við kannski uppá kaffi), seinnipartinn á sunnudaginn.