Já mamma bakaði svona „smá“ af bollum í gær svo bolludagurinn var augljóslega tekinn út þá 😉
Nú renna flestir dagar saman í eitt og ekki mikið gert nema að bíða, það verður ágætt þegar einhvers konar rútína verður komin í gang en það veltur víst allt á einhverju sem ég hef enga stjórn á.
Þegar eitthvað gerist og ég verð orðin nógu öflug til að henda inn myndum og einhverju skemmtilegu verður það væntanlega sett á síðuna sem hingað til hefur verið mjög svo falin – umbi.barnaland.is. Við skulum sjá hvernig mér gengur að halda henni uppi – ég reyni allavega! En ég hverf að sjálfsögðu ekki héðan, get ekki hætt héðan af að vera trufluð! Til að fá aðgang að síðunni er hægt að senda mér póst (dagbjog@hi.is, daggerbrown@gmail.com) eða einfaldlega tala við mig.
Að lokum óska ég Óla Gneista til hamingju með afmælið – það gengur ekki alveg nógu vel með afmælisgjöfina!