Það er af það sem áður var að á heiminn herjuðu óumburðarlyndisfasistar eins og Hitler. Núna þurfum við að fást við svona umburðarlyndisfasista. Við erum í stórhættu.
Það er af það sem áður var að á heiminn herjuðu óumburðarlyndisfasistar eins og Hitler. Núna þurfum við að fást við svona umburðarlyndisfasista. Við erum í stórhættu.
Þegar orðið umburðarlyndisfasismi var fyrst yrt af prestsyninum þá var ég mest hissa á að blaðamaðurinn sem tók viðtalið skyldi ekki hafa spurt manninn hvort hann væri ekki örugglega að grínast. Það hefði líka verið gott að prestsonurinn hefði verið spurður hvort hann vissi hvað fasismi væri. En þetta virðist ætla að verða kjörorð Framsóknarflokksins. Verði þeim að því. Ætli kjósendurnir séu stoltir?
Á fimmtudaginn hitti ég loks Júlíönu og fór með henni að ganga frá hennar bókunum fyrir Derry ferðina. Það var samt vesen með hótelbókun fyrir nóttina í London. Ég hafði pantað áður á hóteli en ekkert var laust. Við tókum því og leituðum uppi hótel á svipuðum slóðum fyrir hana og það fannst. En við hefðum væntanlega getað sleppt því að velja eftir staðsetningu því í morgun bókaði ég á sama hóteli og Júlíana þannig að við erum komin með allt á hreint með ferðaplönin. Ég þarf síðan að dunda mér að skoða hvernig greinin getur virkað betur sem fyrirlestur o
Í dag hitti ég mann sem lofaðist til að gifta okkur Eygló. Það þarf bara að tryggja að hann sé á landinu þegar að því kemur.
Í dag sendi ég smá skrif til Cork og fór líka í bankann til að reyna að innleysa ávísun frá leigusalanum þarna úti. Það mun víst taka allt að tvær til þrjár vikur að fá peningana. Þá gæti verið liðið hálft ár frá því að ég fór þaðan.
UVG stóð sig prýðilega sem samviska þingflokksins en maður hlýtur að spyrja sig hvar ungliðar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks séu þegar þeirra fólk ræðst að trúfrelsi í landinu.
Það þótti ekki falleg einkunn þegar Harry Belafonte kallaði Colin Powell húsþræl. Ástæðan er sú að húsþrælar voru lítils metnir af öðrum þrælum. Með því að vera sérstaklega þjónustulundaðir við meistara sína fengu þeir að vera inn í híbýlum þeirra og þjóna þeim. Fengu gömul föt af þeim og héldu að þeir væru þess vegna meira virði. En í raun voru þeir bara þægari. Það er ekkert virðingarvert við það. Húsbændurnir voru líka alveg líklegir til þess að losa sig við þá þegar þeir komu ekki lengur að gagni. Þeir áttu því afar fáa vinir, þessir þægu húsþrælar.
Þetta er væntanlega stærsti skjálfti sem ég hef fundið fyrir. Húsið nötraði alveg.
Stefni á að vera minna bitur bloggari á næstunni allavega.
Maðurinn á allavega ekki erfitt með ljúga. Hvenær á síðan að verðlauna fólk sem segir sannleikann?
Ef þið viljið ná ennþá nánara sambandi við mig er hægt að nota oligneisti@hotmail.com fyrir MSN. Ég nota ekki hotmail tölvupóst heldur nota ég tölvupóstfangið olis hjá hi.is. Ég er síðan stundum á Skype undir oli.gneisti.
Vefurinn er knúinn af WordPress | Tiga þema eftir shamsulazhar (nokkuð aðlagað þó)