Er nauðsynlegt að skjóta þá?

Í dögun sefur spegill hafsins, kjölur býr til sár
Skutullinn býður komu hvalsins , klýfur loftið kaldur nár.
Dauðann mun hann líta, því augu hans þrá að sjá
Hvort hafið sé jafn fallegt og fjöllin jafn tignarleg, ísröndin jafn blá.

Hvað heldur þú, er nauðsynlegt að skjóta þá?

Seðlar stjórna lífinu auma hvíslar brotin rödd
Hvur trúir á drauma , trúir á draumsins heimsku rödd?
Þegar sólin kyssir fjöllin, þú sérð þá koma inn
Við síðuna liggja tröllin og í rákinni brotinn spegillinn.

Hvað heldur þú, er nauðsynlegt að skjóta þá?
Hvað heldur þú, er nauðsynlegt að skjóta þá?

Í dögun sefur spegill hafsins, kjölur býr til sár
Skutullinn býður komu hvalsins, klýfur loftið kaldur nár.