Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Þriðjudagur, 31. maí 2005 klukkan 18:16

Skítleg hegðun

Þegar ég var að keyra Hringbrautina áðan þá varð ég vitni að skítlegri hegðun hjá ökumanni. Þetta var við þrenginguna, það var að koma sjúkrabíll, allir sem voru fljótir að gefa eftir og koma sér frá. En í kjölfar sjúkrabílsins kom bíll á fullri ferð og nýtti sér svigrúmið sem hinir höfðu gefið eftir. Sá sem sér sjúkrabíl sem tækifæri til að koma sér áfram í umferðinni er skíthæll.

Mánudagur, 30. maí 2005 klukkan 15:13

Önn lokið

Ég fékk 8,5 í Norrænni trú. Glaður er ég. Ég hef því fengið 8 - 8 - 8,5 á þessari önn. Á sama tíma var ég í 44% vinnu, fór í framboð til Stúdentaráðs og sat fundi í deildarráði Félagsvísindadeildar, ég get verið mjög sáttur við útkomuna.

Mánudagur, 30. maí 2005 klukkan 12:32

Mannfórnaritgerðin metin

Ég fékk 8,5 fyrir ritgerðina um mannfórnir, ég er sáttur. Ég hefði verið óánægður ef ég hefði farið niður fyrir 8. Verst að mér gekk væntanlega verr í prófinu. Og já, hún mun væntanlega verða aðgengileg þeim sem vilja á næstunni.

Mánudagur, 30. maí 2005 klukkan 2:06

Lektorinn sem féll fyrir fölsun

Við Hjalti eigum grein dagsins á Vantrú. Við ræðum þar um stórundarlegt svar sem Kristján Valur Ingólfsson lektor gaf fermingarbarni á vef þjóðkirkjunnar. Fyrsta skiptið sem við Hjalti skrifum saman.

Sunnudagur, 29. maí 2005 klukkan 17:11

Lok annar

Ég þarf að vakna fyrr á morgun til að komast yfir í Odda að ná í ritgerðina mína í Norrænni trú. Fæ þá væntanlega út úr prófinu á morgun. Þá er önninni lokið.

Sunnudagur, 29. maí 2005 klukkan 16:20

Prestskosningar

Prestskosningarnar á Vopnafirði fóru ekki einsog þær áttu að fara. Sú sem átti að vinna (Bakkafjarðarpresturinn) vann ekki. Planið var að sameina Bakkafjörð og Vopnafjörð undir einn prest en Vopnfirðingar vildu það greinilega ekki. Spurning hvort að nú þurfi að sparka Bakkafjarðarprestinum til að sameina.

Sunnudagur, 29. maí 2005 klukkan 16:08

Þvottahúsvesen

Mér leiðist verulega hvernig gengið er um þvottahúsið hérna. Fullt af fólki geymir þvottagrindurnar sínar þarna einsog ekkert sé eðlilegra. Í húsinu mínu eru rúmlega 20 heimili og ef allir gerðu þetta væri ekkert pláss eftir þarna niðri. Síðan er fólk sem notar þvottavélina án þess að skrá sig fyrir henni. Í síðustu viku lenti Eygló í því að einhver tók bara hennar tíma.

Ég var að lenda í því að einhver hafði troðið þvottinum sínum í vélina án þess að hafa pantað tíma og hafði þar að auki ekki sett vélina af stað. Ég veit ekkert hvenær þessi þvottur kom þarna, gæti hafa komið mínútu áður en ég mætti á svæðið en gæti líka hafa komið þarna í gær. Ég beið í smá tíma og tók hann bara út og setti minn inn. Ég nenni ekki að púkka upp á fífl sem ekki kynna sér reglurnar.

Sunnudagur, 29. maí 2005 klukkan 15:14

Árshátíðin

Árshátið Vantrúar var í gær. Rosalega gaman, voru að frá klukkan 7 til rúmlega fjögur um nóttina. Best var reyndar að við erum núna með fullvissu um að Skeptíkus verður öflugur á næsta ári, við erum komnir vel á leið með að skipuleggja sýningar sem ættu að duga alla haustönnina.

Ég skutlaði Bigga, Lalla og Vésteini heim eftir þetta og við enduðum á því að taka okkur smá rómantískagönguferð í Elliðaárdalnum. Indælt.

Miðvikudagur, 25. maí 2005 klukkan 19:12

Að selja sig

Fyrir nokkrum dögum var frétt um að Bono vildi ekki leyfa að eitthvað U2-lag væri notað í auglýsingu. Minnir að þar hafi eitthvað verið talað um að selja sig. Í dag er síðan frétt í Fréttablaðinu um að Bono vilji “klára” plötuna Pop, að U2 hafi flýtt sér með Pop vegna þess að þeir voru í tímaþröng og aldrei verið ánægðir með hana. Mér finnst Bono setja sig á full háan hest, gerir mikið mál úr því að nota lag í auglýsingu en selur aðdáendum sínum hálfkláraða plötu.

Þriðjudagur, 24. maí 2005 klukkan 18:15

Annar vinnudagurinn búinn

Annar vinnudagurinn er búinn, reyndar bara fjórir tímar í dag og einn í gær. Starfið virðist henta mér, vinnufélagarnir fínir (og líklegir til að lesa dagbókina).

Eldri færslur »