Hlí­fiskjöldur

Það vekur furðu mí­na að á 1. desember hátí­ðarhöldum Stúdentaráðs Hí í­ ár koma ekki til með að sitja fyrir svörum fulltrúar úr menntamálanefnd Alþingis eins og undanfarin ár. Einmitt nú hefði verið sérstaklega spennandi að krefja fulltrúa Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks efnda enda engin smá loforð sem gefin hafa verið háskólastúdentum sí­ðustu ár. Ég velti því­ fyrir mér hvort breyting hafi orðið á vegna þess að Samfylkingin er komin í­ rí­kisstjórn eða eru breytingar eftir rí­kisstjórnarskipti bara tilviljun?