Ég er ekki annað en samansafn af því sem orðið hefur á vegi mínum síðan ég fæddist. Fæðingardagurinn var 17. desember 1984, á afmælisdegi móðurömmu minnar. Þar sem ég fæddist á mánudegi kom ekkert Morgunblað út þann daginn. í raun virðist lítið markvert hafa gerst þann dag fyrir utan auðvitað fæðingu mína. Það erfitt að tala um fæðinguna án þess að minnast á foreldra sína en þeirra er getið hér í neðstu málsgreininni.
Til tvítugs bjó ég í Borgarnesi þar sem ég kláraði grunnskóla en framhaldsskólamenntun sótti ég á Akranes. írið 2007 útskrifaðist ég með BA gráðu í þjóðfræði þar sem ég tók safnafræði sem aukagrein frá Háskóla íslands. Þegar þetta er skrifað stunda ég MA nám í þjóðfræði við sama skóla.
Ég er haldinn þeirri fíkn að starfa í félagsmálum og hef sinnt margvíslegum félagsstörfum m.a. fyrir nemendafélög í grunn- og framhaldsskóla auk þess að vesenast í hagsmunabaráttu stúdenta. Ég er framsóknarmaður eins og ég hef kyn til. í dag gegni ég varaformennsku í Sambandi ungra framsóknarmanna.
Og einhverra manna er ég eins og aðrir. Foreldrar mínir eru þau Jón Agnar Eggertsson (f. 5.1.1946, d. 11.2.1993) frá Bjargi í Borgarnesi, fv. formaður Verkalýðsfélags Borgarness og Ragnheiður S. Jóhannsdóttir kennsluráðgjafi frá Sauðárkróki (f. 27.7.1955). Föðuramma mín hét Aðalheiður Lilja Jónsdóttir (f. 8.8.1910, d. 29.3.2001) sem fædd var og uppalin á Arnarfelli í Þingvallasveit og föðurafi Eggert Guðmundsson (f. 20.10.1897, d. 19.8.1979) frá Eyri í Flókadal. Móður amma mín heitir íslaug Ester Sigfúsdóttir (f. 17.12.1926) frá Sauðárkróki og var hún gift honum afa, Jóhanni Sólberg Þorsteinssyni (f. 6.3.1910, d. 12.5.2006) frá Stóru-Gröf í Skagafirði.