Er hægt að innbyrða of mikið af kristilegum kærleik? Ja… Ef hægt er að lesa yfir sig af kristilegum miðaldabókmenntum og biblíusögum þá held ég að ég hafi gert það í gær. Ánæstunni held ég mig við heiðna vini mína eins og Egil og slíka kappa. Um kvöldmat í gær var ég farinn að pikka inn í tölvuna á hraða snigilsins. Einn stafur á tveggja mínútna fresti. Yfirlesinn fór ég á einhvern lengsta stjórnarfund hjá Þjóðbrók sem ég hef setið. Mjög heitar umræður fram á nótt. Reyndar skemmtilegar umræður.