Maí­stjarnan

En í­ kvöld lýkur vetri
sérhvers vinnandi manns,
og á morgun skí­n maí­sól.
Það er maí­sólin hans.
Það er maí­sólin okkar,
okkar einingarbands.
Fyrir þér ber ég fána
þessa framtí­ðarlands

Skólinn hefur eyðilagt hugtakið þjóð fyrir mér eins og öðrum. Hef sætt mig við að hugtakið hafi verið búið til á tí­mum upplýsingarinnar. í framhaldinu er þeirri spurningu varpað upp hvort þjóðir geti munað. Tökum sem dæmi afmælishátí­ð lýðveldisins á Þingvöllum 1994. Hvers var verið að minnast með mullersæfingum í­ grýttu hrauninu, sí­ldarplani og Maí­stjörnunni? Muna menn ekki endilega hverju verið er að fagna, en koma samt saman og fagna vegna þess að þeir vita að eitthvað sé þess virði að muna? Hélt einhver að framtí­ðarlandið væri lýðveldið ísland?