Áþessari síðu hefur síðustu ár farið fram mikilvæg könnun fyrir Stúdentaráðskosningar, þ.e. um kynþokkafyllsta frambjóðandann. Framkvæmd könnunarinnar hefur verið vönduð og heiðarleg. Þar hefur sannast að frambjóðendur Háskólalistanns bera af öðrum í kynþokka ár eftir ár. í ár gerði enginn svona könnun og tók því eitthvað vefrit upp á því að fá manneskju með hálf furðulegan smekk til þess að velja kynþokkafyllstu frambjóðendurna. Þar sem niðurstöðurnar eru ekki í samræmi við það sem mér finnst lýsi ég frati á þær. Hér gefur að líta lista fallega fólksins í ár.