29%

 

 

Kannanir sýna að áhugi ungs fólks á stjórnmálaþátttöku fer dví­nandi. Ungt fólk tekur þátt í­ stjórnmálum til þess að hafa áhrif umhverfi sitt, til þess að gera það samfélag sem við búum í­ enn betra. Það verður að fá tækifæri til að koma hugsjónum sí­num á framfæri. Áþær raddir verða þeir sem eldri og reyndari að hlusta. Ég veit ekki til þess að á þetta skorti í­ mí­num flokki en hef tekið eftir því­ að ungliðar fá ekki blí­ðar móttökur í­ ýmsum öðrum flokkum. Ég minni á að Framsókn á þrjá yngstu þingmenn þjóðarinnar.

Samkvæmt Gallup treysta aðeins 29% þjóðarinnar Alþingi. Ég þarf stundum að svara þeirri spurningu hvernig ég nenni að taka þátt í­ stjórnmálum. Eru stjórnmál ekki bara eilí­ft þras sem litlu skilar? Sem betur fer er upplifun mí­n af þeim ekki þannig en það kann að vera að þeir sem fylgjast með aðeins í­ gegn um fjölmiðla sjái fyrir sér þessa mynd.

Það er miður að almenningur í­ landinu beri könnun eftir könnun lí­tið traust til alþingis. Áþessar niðurstöður verða þingmenn (í­ öllum flokkum) að hlusta, þeir þurfa á trausti almennings að halda. Alþingi þarf á trausti að halda til þess að auðveldara verði að fá þangað til starfa ungt og drí­fandi fólk.