Ég átti mér svo sem ekki þann draum að troða upp á Broadway en gerði það engu að síður í gær ásamt nokkrum SUFurum. Þeir gagnrýnendur sem ég kýs að hlusta á eru sammála um að atriðið hafi staðið fyrir sínu.
Flokksþingið tókst mjög vel og á forysta og skrifstofa flokksins þakkir skildar fyrir gott skipulag. Þar lauk flokkurinn málefnastarfi sínu sem hófst í haust. íštkoman er mjög flottur pakki mála sem unnið að á næstu árum. Ég held að SUF geti vel við unað, ungt fólk var áberandi á þinginu og við náðum í gegn mörgum mikilvægum málum sem varða ungt fólk sérstaklega í nær öllum málaflokkum.
Vegna þingsins missti ég af tveimur afmælum sem ég hefði viljað mæta í, bæði hjá Sigrúnu og Eygló. Það er svona að geta ekki verið á tveimur stöðum í einu. Alveg furðulegt að Framsókn skipuleggi flokksþing þegar þær eiga afmæli. Jafnvel grófara en þegar Samfylkingin skipuleggur landsfund á sama tíma og Sjálfstæðisflokkurinn heldur sinn.