Ég, Rósa og Sigrún Hanna höfum ákveðið að keppa í BA-ritgerðum. Ekki í gæðum heldur hversu fljót við verðum að skila. Ég hef mjög mikið keppnisskap eins og þið vitið og ætla að leggja mikla áherslu á þessa keppni enda fær sigurvegarinn lúxus máltíð frá þeim sem töpuðu. Eins og staðan er hjá mér núna er ég kominn með vel yfir 4.000 orð af 10.000 (sem er lágmark). 2000 orð á viku og ég klára í mars. Kannski full mikil bjartsýni en þó, aldrei að vita.