Sé einhver sem saknar þess að fá ekki svör frá kærustunni sinni þá gæti það verið vegna þess að hann er að senda mér nafnlaus SMS frá síminn.is. í fyrstu kippti ég mér lítið upp við þetta ég en núna er ég eiginlega farinn að fá smá samviskubit þar sem svo virðist sem þessi aðili halda að stúlkan hafi gefist upp á sér enda fær hann engin svör frá mér. Persónulega langar mig lítið í bíó með nafnleysingjanum eða fá gott nudd frá honum. Ég hef hann líka grunaðan um að vilja ekkert með mig hafa.