Aðeins persónulegri

Það er ágætt að hafa einhvern sem tekur sí­ðuna hjá manni í­ gegn sé hún ekki að virka eins og hún á að gera. Ég á einn þannig bróðir sem hressti aðeins upp á þessa hér og gerði hana aðeins hlýlegri og persónulegri. Ég kunni samt ágætlega við gamla lúkkið eða það sem var búið að vera sí­ðustu vikur þó einhverjum hafi fundist það vera of unglingastelpulegt.

Núna er komin mynd af Bjarginu efst. Það eru fáir staðir þar sem ég kann betur við mig en þar. Myndin hér til hliðar er tekin í­ fjörunni á sama stað með Borgarfjarðarbrúna í­ baksýn. Eftir einhver ár stendur til að setja veg einmitt þarna meðfram ströndinni, kannski maður þurfi að taka fleiri myndir til að varðveita minninguna.