Ég er mjög ánægður með þá Framsóknarmenn sem barist hafa fyrir því að ákvæði um auðlindir verði sett inn í stjórnarskrána. Með því er komið í veg fyrir að auðmenn eignist fiskinn í sjónum eða aðrar náttúruauðlindir og geti ráðskast með þær sem sína eign. Ríkið getur aftur á móti leyft hverjum sem er að nýta auðlindirnar til lengri eða skemmri tíma. Ekki er verið að festa kvótakerfið í sessi með þessum breytingum sama hvað hver segir.
Það var svo sem ekki hlaupið að því að koma málinu inn á borð þingmanna fyrir kosningar þrátt fyrir að málið hafi verið í stjórnarsáttmálanum 1995 og 2003, rætt í auðlindanefnd og stjórnarskrárnefnd. Frá því í desember hefur það verið á borði Forsætisráðherra. Eftir flokksþing Framsóknarmanna komst skriður á málið og mælt verður fyrir því á þingi í dag. Það hefur því verið rætt mikið um málið af öllum aðstandendum þess.
Stjórnarandstaðan sagðist í síðustu viku styðja að ákvæði um þjóðareign auðlinda færi inn í stjórnarskrána auk þess sem hún studdi það í stjórnarskrárnefndinni. Þá lá engin tillaga um orðalag fyrir. Hún gaf út innistæðulausa ávísun þar sem nú hentar betur að vera á móti. Hvað kom fyrir. Breyttist allt þegar Ingibjörg Sólrún kom heim frá Kanarí eða kom kannski ný könnun?