Ég kynnti mér starfsemi Framsóknarflokksins á föstudaginn ásamt öðrum þjóðfræðinemum. Auk okkar voru á svæðinu guð-, mann-, sagn- og fornleifafræðinemar. Ég get ekki sagt annað en að mér lítist ágætlega á þennan flokk. Ég reyndar veit ekki hvort ég sé rétti aðilinn til að dæma hvernig til tókst en vil benda á eina staðreynd sem ekki kom fram á föstudaginn. Ég held enginn annar flokkur geti státað af sérstakri þjóðfræðideild. Bara í framboði eru tveir þjóðfræðinemar og einn þjóðfræðingur.
Jónína Bjartmarz, Dagný, Birkir, Sæunn, Jónína Brynjólfs, Jóhanna, Sveinn Hjörtur og fleiri áttu mjög góðar og málefnalegar umræður við okkur. Gaman þegar þrír yngstu þingmenn þjóðarinnar eru allir í sama flokknum. Til samanburðar er yngsti þingmaður VG jafngamall mömmu (mamma ef þú lest þetta þá ertu ekki gömul, stoppkallinn er það bara). Inn á þingi þarf að vera ungt fólk sem vinnur að málefnum ungs fólks.
í gær var frambjóðendaráðstefna flokksins sem heppnaðist ljómandi vel. Næsta laugardag er síðan Stjórnmálaskóli SUF sem ég hvet ykkur til að kíkja á. Skráning stendur yfir á framsokn@framsokn.is til fimmtudags. Þangað til reyni ég að skrifa ritgerð.