Ég lenti í mínu óhappi í dag þegar pústið datt undan bílnum í Breiðholtinu í hádeginu. Það er sem betur fer komið í lag. Þar sem ég er búinn með óhappakvótann minn ætti að vera óhætt fyrir mig að fara til Grindavíkur í kvöld.
Það ætti líka að vera alveg óhætt fyrir ykkur að kíkja á opnun kosningaskrifstofa okkar Framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi á morgun.
í Mosfellsbæ, Háholti 14 kl. 10:30 – kaffiveitingar
í Garðabæ, Kirkjulundi 19 kl. 14:00 – kaffiveitingar
í Hafnarfirði, Dalshrauni 5 kl. 15:00 – kaffiveitingar
í Kópavogi, Digranesvegi 12 kl. 17:00 – léttar veitingar