Kosningabarátta okkar Framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi hófst formlega í gær þegar kosningaskrifstofur voru opnaðar í Mosfellsbæ, Garðabæ, Hafnarfirði og Kópavogi. Ég fórnaði mér fyrir flokkinn og smakkaði veisluföngin á öllum stöðum, annað væri ókurteisi. Kidda gerir líka deginum mjög góð skil í myndum.
Um helgina héldu Sjálfstæðismenn víst mjög flottan landsfund. Þeir vilja samt áfram taka upp skólagjöld við opinbera háskóla. Þar er ég ósammála þeim. Samfylkingin stóð á sama tíma fyrir trjáræktarnámskeiði í Egilshöll þar sem kennt var hvernig rækta eigi peningatré. Því miður eru ekki ákjósanleg skilyrði til ræktunar þeirra hér á landi enda væri ég búinn að fá mér eitt slíkt ef svo væri.