Reyndar ekki frá Gallup eða Fréttablaðinu heldur könnun sem ég ákvað að taka sjálfur. Rakst á þennan tengil á vefflakki. Hér er á ferðinni ágætis kosningapróf sem gaf mér þessar niðurstöður.
Stuðningur við Sjálfstæðisflokk 43,75%
Stuðningur við Framsóknarflokk 80%
Stuðningur við Samfylkinguna 62,5%
Stuðningur við Vinstri-Græna 37,5%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn 18%
Stuðningur við íslandshreyfinguna 40%
Auðvitað er þetta meira til gamans en ég er samt ekki frá því að ég muni kjósa Framsókn.