Bjarni Harðar upplýsir í reglulegum pistli sínum í Blaðinu í dag að hann hafi haft fullt umboð forystu Framsóknar þegar hann bauð vinstri flokkunum í stjórnarmyndunarviðræður í Silfri Egils 13. maí sl. Ég held að þetta hafi ekki komið fram opinberlega áður. Þegar ég horfði aftur á þáttinn áðan með orð Bjarna í huga tók ég eftir því hvernig nýr iðnaðarráðherra vék sér undan því að svara tilboðinu. Þingflokksformaður VG var hins vegar til í að skoða það. Persónulega efa ég að slík stjórn hefði gengið upp. Hvort ég hafði rétt fyrir mér fáum við hins vegar aldrei að vita.