Ég flaug til Köben 30. júní
Ég skoðaði Kristaníu og Vor Frelsers Kirkju með Óla og Eygló
Ég tók lest til írósa með Óla
Við lentum í strætóveseni við að komast á vistina eftir að hafa fengið vitlausar leiðbeiningar
Ég gisti á Sansestormene við Þriggjatommuveg sem er ágætis heimavist
Ég gekk í skólann á hverjum degi í c.a. 30 mín
Ég las c.a. 1000 bls. af sögum
Það birtist mynd af hnakkanum mínum í Jyllands Posten
Ég kynntist nemendum frá Bretlandi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Þýskalandi, íslandi og Bandaríkjunum
Ég hafði mjög gaman af því að fylgjast með tesiðum Bretanna
Ég komst að því að riddarasögur höfða lítið til mín
Ég komst þó að því að íslenskar riddarasögur eru mikið skárri en franskar
Ég söng eitthvað smá, m.a. Vem kan segla förutan vind á hollensku
Ég spilaði Munchkin Cthulhu í fyrsta skipti og líkaði ágætlega
Ég lét Óla að mestu um að elda en borðaði matinn með bestu lyst enda er hann fínn kokkur
Ég sykraði þó kartöflustöppuna
Ég pirraði mig reglulega á dönskum reykingamönnum
Ég skoðaði Den Gamle By, Moesgí¥rd og víkingasýningu í írósum
Ég reyndi að hvolfa bátnum okkar Óla og Eyglóar á Den Gamle By
Ég sá Graubulle manninn
Ég fékk áhuga á að kynna mér ostahlaup betur og reyna innleiða þá íþróttagrein á íslandi
Ég glímdi við Óla
Ég stofanði Facebook síðu og mæli með að fleiri geri slíkt hið sama
Ég horfði á Return of the King kvöldið fyrir próf í stað þess að lesa meira
Ég hitti Marie aftur sem er líklega farin núna til Mongólíu í fornleifauppgröft
Ég ferðaðist á fyrsta farrými með lest frá írósum til Köben ásamt Óla
Við Óli skoðuðum Vaxmyndasafn Louis Tussaud’s og Þjóðminjasafnið í Köben
Við fórum líka í dýragarðinn, Rundetí¥rn og nördabúðir
Ég flaug heim á fyrsta farrými þar sem ekkert var laust á almennu rými
Ég kom heim rétt eftir miðnætti þann 17. júlí
Ég gleymi örugglega einhverju, en ef einhver vill meira eða ítarlegri lýsingar á atburðum síðustu vikna þá bendi ég á ferðasöguna hans Óla. Nafnið mitt kemur af einhverjum ástæðum nokkrum sinnum fyrir þar.