Kristinn H. Gunnarsson er kominn upp á kant við félaga sína í „Frjálslynda“flokknum. Sigurjón Þórðarson segir hann ekki vilja gefa sér og Jóni Magnússyni upp lykilorð til að skrifa pistla á heimasíðu flokksins. Sigurjón segir hann haga sér eins og þegar hann var í Framsókn. Nýtt þing er nýkomið saman og Kristinn er kominn í gamla farið.