Dagblaðið 24 stundir sem barst í fyrsta skipti inn um lúguna hjá mér í morgun er ekki bylting á dagblaðamarkaðnum eins og boðað hafði verið. Stöð 2, sem er 21. árs í dag var hins vegar bylting á sínum tíma. Kannski er það skemmtileg tilviljun en stöðin sýndi fyrsta kvöldið sem hún var í loftinu kvikmyndina 48 stundir.