Alex birti áhugaverða bloggfærslu í gær um íbúðalánamarkaðinn. Ég hef svo sem ekki miklu við þetta tiltekna mál að bæta en hef í dag verið að renna yfir umræðuna sem fór fram í þjóðfélaginu þegar bankarnir hófu innrás sína á íbúðalánamarkaðinn. Einhverjir voru þá á þeirri skoðun að ekki væri heppilegt að taka lán á föstum vöxtum út lánstímann þar sem líklegt væri að vextir myndu lækka hratt og jafnvel verða komnir í 3% eftir eitt ár. Við sjáum í dag að sú spá rættist ekki. En þessi umræða spratt kannski upp í ljósi þess að lán með 4,15% vexti þýddi alls ekki það sama hjá öllum fjármálstofnunum. Nokkuð misjafnt var á milli þeirra hvort vöxtum er og var þinglýst á eignum, þeir séu fastir út lánstímann eða þá að þeir séu endurskoðaðir á nokkurra ára fresti. í fljótu bragði minnir mig að Landsbankinn og Frjálsi fjárfestingabankinn hafi endurskoðunarákvæði inn í lántökusamningum hjá sér. Kaupþing, Glitnir og íbúðalánasjóður lána á föstum vöxtum út lánstímann. Til annarra stofnana þekki ég ekki nógu vel.
PS. Fyrir þá sem bíða eftir upplýsingum um það hvaða selebb litu við í tíma hjá Valdimar í dag þá er frá því að segja að aðra vikuna í röð náðist ekki í Diarmuid. Regina Bendix spjallaði hins vegar við okkur um ekta og óekta þjóðfræðaefni.