Þessi skóli er að taka allt of mikinn tíma frá manni. Ég náði því þó að skreppa norður á Akureyri um helgina á miðstjórnarfund Framsóknarflokksins. Yfir bænum sveif ferskur blær enda var vart þverfótað fyrir framsóknarfólki. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum og á bloggsíðum hér og þar ríkti góð eining og samstaða á fundinum. Flokkurinn mætti gera meira af því að færa stóru fundina út á land. Ég er ekki frá því að erfitt sé að ná upp jafn góðri stemmingu í öllu stressinu á höfuðborgarsvæðinu eins og myndaðist í kyrrðinni á Akureyri. Það var því bara nokkuð afslappandi að fara norður og ágætt að hugsa um annað en skólann einn og hálfan dag.