ítta milljarða króna munur?

Ví­sir spyr hvað Landsbankinn fékk fyrir tæplega helming hlutabréfa í­ VíS á sí­num tí­ma og segir átta milljarða króna mun vera á svörum fyrrverandi ráðherra Framsóknarflokksins við þeirri spurningu. Galli fréttarinnar er hins vegar að lí­klega eru svörin mistúlkuð. Ég skil það allavega þannig að Valgerður svari því­ á hvaða verði hluturinn var seldur (6,8 milljarðar) en Finnur hvert markaðsvirði fyrirtækisins var miðað við söluna (14-15 milljarðar). Þá kæmu tölurnar meir að segja næstum því­ heim og saman.

Að lokum skal það tekið fram að ég hef ekki hugmynd um hvað bankinn fékk fyrir félagið og hef svo sem ekki verið að velta því­ fyrir mér hvað fjármálastofnanir hafa fengið fyrir fyrirtæki sem þau hafa selt í­ gegn um tí­ðina.