„Og 750 ml. mayonnaisedósina fær…“

Þar sem ég kemst ekki á þorrablót í­slenskra þjóðfræðinema í­ ár þurfti ég að leita annað til þess að verða mér úti um góðan mat og skemmtunina sem honum fylgir. Ég fór því­ á þorrablót íslendingafélagsins í­ írósum í­ gær og kom í­ ljós að það reyndist bara vera hin besta skemmtun. Á blótið fór ég í­ góðum hópi íslendinga ásamt einum Færeying og Dana. Meðleigjendur mí­nir voru eitthvað hálf skeptí­skir á að maturinn myndi bragðast eins vel og ég hafði lýst honum og sátu því­ eftir heima. Hluti þeirra hefur reyndar lofað mér að smakka hákarl ef ég get orðið mér úti um hann. En maturinn í­ gær var betri en ég hafði lýst honum og þorað að gera mér í­ hugalund enda kannski ekki skrýtið þegar kokkurinn er Borgnesingur og meirihluti undirbúningsnefndarinnar einnig. Reyndar hafði ég áhyggjur af því­ hvort Borgarnes væri mannlaust í­ gær, svo marga Borgnesinga hitti ég.

Blótið gekk nokkuð eðlilega fyrir sig, matur, veislustjóri, happadrætti og ball. Nokkrir vinninganna í­ happadrættinu voru sérstaklega skemmtilegir. Þetta er t.d. í­ fyrsta sinn sem ég sé fólk hamingjusamt með að vinna Gunnars mayonnaise eða Ora fiskibollur í­ happadrætti. Að sjálfsögðu voru fleiri vinningar í­ boði svo sem Undri tjöruhreinsir, í­slenskt áfengi og ferðavinningar. Þrátt fyrir aftakaveður á íslandi komust Edda Björgvins og í móti sól komust til Danmerkur. Mér skilst reyndar að þar hafi litlu mátt muna. En kvöldið var skemmtilegt, reyndar eins og dvölin mí­n hér til þessa. Verst að ég gleymdi Tupperware boxinu heima því­ nú langar mig í­ meira slátur.