Ef mark er takandi á Orðinu á götunni þá eru framundan nafnabreytingar á einhverjum sjónvarpsstöðvum 365 miðla. Ef fara á út í þannig breytingar finnst mér líklegast að horft verði til þess hvernig Sky markaðssetur sínar stöðvar. Þá yrði nafninu á Sýn til dæmis breytt í Stöð 2 Sport. 27. febrúar sl. keyptu 365 miðlar einmitt lénið stod2sport.is. Séu þessar breytingar framundan má kannski búast við því að Sýn 2 hljóti öllu óþjálla nafn, kannski Stöð 2 Sport 2.