Mikið óskaplega þykir mér það leiðinlegt að komast ekki á þennan skóla í Reykjavík núna á laugardaginn. Ég hefði líka alveg verið til í að skreppa norður á Akureyri sama dag og sitja þennan skóla. En þar sem ég er ekki ráðherra á úber súber mengandi einkaþotu verð ég víst á láta mér það nægja að dúsa í Danmörku á meðan þessir stórskemmtilegu skólar eru í gangi. Lesendur mínir geta þó skroppið og menntað sig séu þeir staddir á íslandi og ég mæli að sjálfsögðu með því. Enn leiðinlegra samt að hugsa til þess að þetta er annar svona skólinn sem ég kem að skipulagningu á og af báðum hef ég misst vegna dvalar erlendis.
Annars var ég að reikna smá í morgun og ætla að deila með ykkur niðurstöðunum. 1 klukkustund einkaþotu á flugi jafnast á við ársútblástur venjulegs fólksbíls (sjá hér). Flug forsætis- og utanríkisráðherra til Búkarest gæti hafa tekið um fimm klukkustundir samkvæmt Dohop. Fram og til baka mengar þotan því á við ársútblástur 10 fólksbíla. í samanburði við almennt farþegaflug þá er útblástur á hvern farþega einkaþotu tífaldur (sjá hér). Hvernig þetta fer heim og saman við fagra ísland Samfylkingarinnar, nú eða þá jafnaðarstefnuna á eftir að koma í ljós. En væri ég formaður í skógræktarfélagi myndi ég nota tækifærið og sækja um styrk til þessara ráðuneyta strax í dag.