Mikið óskaplega virðist minni Samfylkingarfólks vera götótt þegar kvartað er í dag undan neikvæðri stjórnarandstöðu. Ólíkt þeim sem kvarta man ég eftir því er Samfylkingin var í stjórnarandstöðu. Flokkurinn var nú ekkert allt of jákvæður þá. Annars er það eðli stjórnarandstöðunnar að gagnrýna ríkisstjórnina þegar tilefni er til. Mér finnst núverandi stjórnarandstaða standa sig ágætlega í þeim efnum þó á stundum kunni það að hljóma sem neikvætt nöldur sem það er sjaldnast. Mikilvægasta hlutverk stjórnarandstöðunnar þó að bjóða upp á annan valkost við stjórnun landsins en núverandi ríkisstjórn. Þar standa Framsókn og Vinstri Græn sig í stykkinu. Umkvartanir stuðningsmanna Samfylkinginnar eru að mér sýnist merki um taugaveiklun. Þeir eins og aðrir sjá að flokkurinn virðist ekki ætla að standa undir þeim væntingum sem bundnar voru við hann í ríkisstjórn. í örvæntingu er gripið til þess ráðs að pota í stjórnarandstöðuna sem á líklega aðeins eftir að eflast að burðum á næstu mánuðum.