Sunnudaginn 3. maí 1992 birtist meðfylgjandi auglýsing í Morgunblaðinu. Þá ræddu Geir og Ingibjörg kosti og galla aðildar að Evrópubandalaginu (nú Evrópusambandinu) fyrir opnum tjöldum. Nú finnst mér sá fyrrnefndi helst vilja sussa á umræðuna um kostina og Ingibjörg sussa á umræðuna um gallana.
Félag sjálfstæðismanna í Langholts- og Lauganeshverfi
ísland í Evrópubandalagið???
Félög sjálfstæðismanna í Langholts- og Laugarneshverfi boðar til almenns fundar að Holiday Inn miðvikudaginn 6. maí kl. 20.30. Fundarefni: ísland og Evrópubandalagið.
Ólafur Davíðsson ráðuneytisstjóri gerir grein fyrir áhrifum EB aðildar á íslensk efnahagsmál og stjórnkerfi. Alþingismennirnir Geir H Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fjalla um kosti og galla EB aðildar. Fyrirspurnir og umræður. Allt sjálfstæðisfólk velkomið, takið með ykkur gesti.
Stjórnirnar