Það getur varla verið að Ólafur F. sé að gera annað sem borgarstjóri en að hefna sín á Sjálfstæðisflokknum vegna sambandsslitanna á sínum tíma. Hefndin er svo sannarlega sæt og ég geri ráð fyrir því að hann njóti þess að sjá samstarfsflokkinn emja og æpa á píningarbekknum (veit ekki hvort hann geri sér grein fyrir að borgarbúar finna líka til vegna stjórnleysis meirihlutans en látum það liggja á milli hluta). Sjálfstæðisflokkurinn virðist ætla að láta allt yfir sig ganga, bara til þess að halda meirihlutanum lifandi út kjörtímabilið.
Færi borgarstjóri fram á að borgarstarfsmenn mættu til vinnu í einkennisfatnaði í 19. aldar stíl fengi hann það líklega samþykkt. Væri það samt ekki bara nokkuð flott? Þessi mynd gæti þá allt eins verið tekin í mötuneyti menntasviðs borgarinnar á venjulegum þriðjudegi. Ég sæi síðan Jakob Frímann og ljósmyndara borgarstjóra taka tal saman í þessum skrúða um deilur Herr Ólafs og lafði Ólafar. Ólafur sjálfur myndi síðan mæta til vinnu svona klæddur. í†ji, veit ekki. Kannski er bara best að halda sig við 21. öldina.