Borgarnes ræður

Auðvitað ræður Borgarnes. Nú eru Skallarnir komnir í­ úrslitakeppni 3. deildarinnar í­ fótbolta þar sem þeir keppa við Huginn frá Seyðisfirði. Þetta tókst þeim án þess að hafa í­ liðinu besta í­slenska knattspyrnumann fyrr og sí­ðar (sjá sp. 24). Borgnesingar eiga lí­ka tré ársins sem hlýtur að teljast mikil viðurkenning. Ég geri allavega ráð fyrir að ferðamannastraumurinn í­ Borgarnes eigi eftir að margfaldast á næstu dögum.

Annars flutti Guðni ígústsson sí­na borgarnesræðu í­ gær og fórst það vel úr hendi. Einhverjir þurftu að standa þar sem setið var í­ hverju sæti í­ Félagsbæ og saknaði ég þó margra góðra framsóknarmanna sem hafa verið fastagestir á fundum í­ Borgarfirði og Mýrum á sí­ðustu árum.

Hugtakið „borgarnesræða“ virðist vera helst tengt við núverandi formann Samfylkingarinnar. Mér þykir miður að svo sé. Á þriðja áratug 20. aldar fóru t.d. fram landsfrægir stjórnmálafundir í­ Borgarnesi þar sem menn á borð við Jónas frá Hriflu fluttu nokkurra klukkustunda langar ræður, borgarnesræður. Fundir þessir fóru fram í­ gamla sláturhúsinu og stóðu menn þá í­ salnum þar sem engin sæti voru í­ allt að sex klukkustundir á meðan stjórnmálamennirnir tókust á í­ púltinu. í Borgarnesi voru því­ fluttar borgarnesræður löngu áður en Ingibjörg Sólrún fæddist.Â