Ég á það til að fara á hlaupabrettið í ræktinni upp úr hádegi á sunnudögum þegar Silfur Egils er í Sjónvarpinu. í dag vildi svo til að ég var næstum því búinn að slökkva á Agli þegar ég sá þrjá framsóknarmenn í sama settinu. Ég var sérstaklega ánægður með að sjá Hafliða Jósteinssson skamma ríkisstjórnarflokkanna sem virðast ekki vita í hvorn fótinn þeir eiga að stíga í dag frekar en fyrri daginn. Góður framsóknarmaður hafði það eitt sinn á orði um Hafliða að frambjóðendur flokksins ættu að hafa hann á speed dial í kosningabaráttu og helst hringja í hann á hverjum morgni til þess að fá stutta peppræðu. Hann var frábær í dag rétt eins og síðasta vor þegar hann kom fram í sama þætti. Ég trú ekki örðu en að hann eigi eftir að birtast oftar á skjánum í vetur.