„Tilgangurinn með þessari aðgerð er að tryggja stöðugleika í fjármálakerfinu“ segir í tilkynningu frá Forsætisráðuneytinu og viðskiptaráðherra segir að verið sé að „verja fjármálalegan stöðugleika“ með aðgerðum morgunsins. Nú spyr ég eins og fávís maður hvort ekki þurfi að ná stöðugleika fyrst áður en hægt verði að tryggja hann eða verja?
Verðbólgan nálgast nú 15%, stýrivextir seðlabankans eru þeir hæstu á Vesturlöndum, fjárlögin gerðu ráð fyrir 20% útgjaldaaukningu árið 2008 frá fyrra ári, gengisvísitalan hefur hækkað um tugi prósenta á stuttum tíma, verðtryggð lán almennings rjúka upp, fasteignir falla í verði, fréttir berast af fjöldauppsögnum fyrirtækja og bankar hafa verið að taka yfir aðra bankastofnanir vegna fjármagnsskorts svo eitthvað sé nefnt. Ef þetta er stöðugleikinn sem ráðherrar ríkisstjórnarinnar sækjast eftir þá ættu þeir að fletta hugtakinu upp í orðabók.