Við framsóknarmenn höfum svona smá montað okkur af því að eiga yngsta þingflokkinn á Alþingi íslendinga. Eftir þær pólitísku hamfarir sem gengið hafa yfir síðustu daga er meðalaldur þingmanna Framsóknar yngri en hann var áður eða tæp 42 ár. Næstur í röðinni kemur þingflokkur Samfylkingarinnar sem er hefur 50 ára meðalaldur. Hjá Sjálfstæðismönnum er meðalaldurinn rúmlega 50 ár og hjá Vinstri grænum er hann rúmlega 54 ár. Lestina reka síðan Frjálslyndir þar sem meðalaldurinn er tæp 59 ár.
í–nnur skemmtileg tölfræðipæling eru kynjahlutföllin hjá Framsókn í dag. Konur eru 57% þingmanna (fjórar af sjö) og er það hæsta hlutfall kvenna í blönduðum þingflokki svo ég muni eftir. Samfylkingin var með 53% hlutfall kvenna í sínum þingflokki 1999 (níu af sautján). Þá fylla konur nú framkvæmdastjórn flokksins þar sem formaður, ritari, formaður þingflokks, formaður SUF og formaður LFK eru allt konur.