Blessunarlega er ég laus við þá þjáningu að fara í próf í desember. Hugur minn er samt sem áður hjá þeim sem í próf þurfa að fara. Ég er reyndar í sömu sporum núna og flestir þeir sem eiga að vera læra undir próf, ég nefnilega nenni ekki að læra. Þess vegna hefur síðasti klukkutími farið í meira vefflakk en til stóð. Ég tók að mér að rannsaka Flickr og leiddi sú rannsókn í ljós að til er fólk sem klæðir börnin sín í ótrúlegasta fatnað ef tala má um fatnað. Ég fann líka út að Frakkar bjóða upp á gosdrykk með sérstöku nafni. Golfarar eru skemmtileg viðbót við mannlífsflóruna og skiltin sem þeir bjóða okkur upp á erlendis eru skemmtileg viðbót við skiltaflóruna. Læknar prenta líka skemmtileg skilti eins og þetta hér. Ég hef alltaf verið smá veikur fyrir skjaldbökum og broddgöltum enda spes skepnur. Innan um skjaldbökur og broddgelti má síðan finna þetta skilti. í lokin var ég orðinn væminn og fann líklega krúttlegustu ljósmynd allra tíma. Eins og þið sjáið þá gengur lærdómurinn vel hjá mér og ég geri ráð fyrir að klára lokaritgerðina mína í júní 2011 með sama áframhaldi.