Eiríkur Guðmundsson er með betri pistlahöfundum landsins. í vikunni flutti hann pistil á Rás 1 sem hann kallaði í–ldungaráðið og fjallaði þar um nýleg afskipti Davíðs Oddssonar, Jóns Baldvins Hannibalssonar og Ólafs Ragnars Grímssonar af íslenskum stjórnmálum. Mér finnst hann hitta naglann það skemmtilega á höfuðið að hann verðskuldi að vakin sé athygli á pistlinum á þessari síðu minni. Hann segir m.a.
…nú er svo komið að þjóðin sameinast ekki um annað en eitt: einhvers konar andúð á einum manni, sem neitar að hætta í vinnunni sinni, þótt búið sé að reka hann. Sameingartákn þjóðarinnar er maður sem neitar að standa upp úr stólnum sínum, við höfum hér annan mann í hárri stöðu sem hefur ekki við að leiðrétta skrif erlendra blaðamanna, sá þriðji, er afgamall orðinn en með fiðring og vill ólmur verða forsætisráðherra, að minnsta kosti formaður í flokki.
ífram heldur hann og segir seinna í pistlinum.
…við erum enn að fást við þessa gömlu herra, sem sigldu með hatta út í Viðey fyrir löngu, og virðast halda að þeir séu hitt og þetta; við erum enn að fást við Alþýðubandalagsmann sem breyttist í fursta, manninn sem innleiddi frjálshyggjuna á íslandi, og náungann sem heldur að hann sé til skiptis De Gaulle og Deng Sjeo Ping!
Hann afgreiðir síðan drauma Jóns Baldvins um formannsembættið í Samfylkingunni þegar hann segir…
Jón Baldvin sagðist um helgina ekkert vera gamall miðað við marga aðra – og það er rétt, hjá Jóni! ég hef séð eldri menn en þá Jón Baldvin, Ólaf Ragnar og Davíð Oddsson. En enginn þessara gömlu manna hélt að hann væri De Gaulle, Adenauer eða Deng sjeo ping, ekki einu sinni í hinsta óráðinu!
Pistilinn í heild sinni má lesa hér en þeir sem vilja hlusta á Eirík flytja pistilinn ættu að smella hér.