Ég óska Akureyringum og öllum sem að Landsmóti UMFí um helgina komu til hamingju með velheppnað mót. Mér hefur oft þótt fjölmiðlar gera meira úr mótinu en þeir gerðu í ár. Stöð 2 fjallaði lítið um mótið og RÚV sýndi ekki beint frá mótinu eins og á a.m.k. þremur síðustu. Sjálfsagt á „ástandið“ sök á því. Fjölmiðlar voru hins vegar óvenju duglegir við að tönglast á því að 100 ár væru síðan fyrsta Landsmót UMFí var haldið. Er þar vísað til þess að 17. júní 1909 var haldið á Akureyri Fjórðungsmót norðlendinga þar sem keppt var í ýmsum íþróttagreinum.
Mér finnst mjög hæpið að um þetta mót sé talað sem Landsmót UMFí þó svo það sé almenn viðurkennt í dag. UMFí kom t.d. ekki að skipulagningu mótsins heldur stóð Ungmennafélag Akureyrar fyrir mótinu f.h. Fjórðungssambands Norðlendingafjórðungs. Á næstu árum voru haldnar víða um land íþróttakeppnir á vegum ungmennafélaga sem ekki flokkast til landsmóta í dag. Ég myndi segja að fyrsta eiginlega landsmótið hafi farið fram í Reykjavík tveimur árum seinna eða 17. júní 1911 (sama dag og Háskóli íslands var stofnaður). UMFí skipaði undirbúningsnefnd fyrir það auk þess sem samdar voru keppnisreglur og þær sendar félögum til kynningar. Á einhverjum tímapunkti á 20. öld er farið að telja „Landsmótið“ 1909 til eiginlegra Landsmóta. í†tli einhver geti bent mér á hvenær það gerist og hvers vegna?