Orð stjórnanda Óperukórsins á forsíðu Fréttablaðsins í morgun vöktu athygli mína. Þar kemur fram að hann vissi vel af því að kórinn hafi fengið styrk úr Framkvæmdasjóði aldraðra árið 2004. Styrkinn fékk hann gegn því kórinn myndi syngja á nokkrum öldrunarstofnunum. í Fréttablaðinu 17. mars segir stjórnandinn hins vegar „Við vissum ekki að styrkurinn kæmi úr Framkvæmdasjóði aldraðra og hefðum ekki þegið hann ef það hefði legið ljóst fyrir“. Er kominn tími á að fleiri biðjist afsökunar á orðum sínum en eldri borgarar og Samfylkingin?
Orð og efndir Vinstri grænna í málefnum eldri borgara fara ekki alltaf saman. Hækkun fasteignagjalda hefur verið heitt mál í Borgarbyggð að undanförnu og hefur Guðsteinn Einarsson, kaupfélagsstjóri farið fremstur í gagnrýninni á sveitarstjórn. Hann hefur sagt hækkunina vera árás á lífskjör og rekstrarskilyrði fyrirtækja á staðnum. í dag skrifar oddviti Framsóknar um málið og bendir á orð og efndir VG.
Orð Margrétar Sverrisdóttur um fjölda ungmenna á stofnfundi ungliðahreyfingar íslandshreyfingarinnar vekja líka athygli mína. í raun kemur mér mætingin á óvart. Ekki það að fáir hafi áhuga á flokknum heldur vegna þess að auglýst var að þeir sem mættu fengju hringitóna, miða á tónleika o.fl. Kannski segir þetta okkur að ekki er hægt að kaupa atkvæði. Mætingin er þó betri en á Snæfellsnesi í síðustu viku þar sem hreyfingin var með almenna fundi. í Ólafsvík mættu tveir og enginn á Arnarstapa.