Þráhyggja örþjóðar með stórmennskubrjálæði

í Norður Atlantshafi má finna 300 þúsund manna þjóð með eurovisionþráhyggju á háu stigi. Þjóðin hefur reynt allt en aldrei unnið. Þjóðin veltir því­ mikið fyrir sér hvers vegna aðrar þjóðir skilja ekki að nú sé kominn tí­mi fyrir hana að vinna keppnina. Nýjasta skýringin er sú að til sé Austantjaldsmafí­an sem sér um sí­na og kýs ekki ísland. Þjóðin áttar sig hins vegar ekki á því­ að árum saman hefur hún tilheyrt Norðurlandamafí­unni og gefur yfirleitt grannþjóðum sí­num hæstu stigin. Ánæsta ári ætlar eyrí­kið litla að gera allt vitlaust í­ keppninni og senda dansara sem fær hvort tveggja sænska gelhnakka og rúmenskar kerlingar með yfirvaraskegg til þess að kjósa ísland. Sjáið bara þessa hæfileika.