Það var sérstakur þáttur á RíšV í gær um leit manna að sönnunum fyrir því að eitthvað væri að marka það sem kæmi fram í hinum fornu grísku goðsögum. í leit að vegsummerkjum sögupersóna Illionskviðu gróf Heinrich Schliemann í Tyrklandi. Hann fann Tróju. Það sannar samt ekki að það sem stendur í Illionskviðu sé sannleikur. Sagan gæti verið lygi. í leit að vegsummerkjum sögupersóna Egils sögu gróf Sigurður Vigfússon í Borgarfirði. Hann fann ekki neitt. Það sannar samt ekki að það sem fram komi í Egils sögu sé lygi. Sagan gæti verið sönn.