Það er alltaf smá eftirvænting að byrja í skólanum á haustin. í dag var fyrsti tíminn í “námskeiði dauðans†sem líklega kemur til með að taka allan minn tíma fram að jólum. í leiðinni fékk ég efni MA ritgerðarinnar samþykkt og gekk frá lausum hnútum varðandi BA ritgerðina. Hún fer í yfirlestur í kvöld. Ekki nóg með það heldur náði ég líka í strætókortið mitt. Nú þarf ég að ákveða í hvað ég á að eyða öllum peningunum sem ég spara á því að nota ókeypis strætó.