Hitt barnið

Smá meira um Haustblað Vöku. Erla Guðrún er þar ennþá sögð hafa verið í­ Röskvu. Hún var í­ Háskólalistanum svo það sé á hreinu. Mér hefur sí­ðan verið bent á að það sé ósanngjarnt að skamma bara annað barnið þegar bæði eiga það skilið. Röskva hefur hins vegar lí­tið sent frá sér í­ haust í­ eigin nafni en þeim mun meira í­ nafni Stúdentaráðs sem er framför. Nú veit ég ekki hvort Vökuliðar vilji ekki taka þátt í­ starfi ráðsins á meðan Röskva er með meirihluta þar eða hvort Röskvuliðar banni þeim það. Ég hef lí­tið séð af Vökuliðum þar sem Stúdentaráð hefur staðið fyrir einhverjum uppákomum og ég hef mætt.

Ég set reyndar spurningamerki við þær tilraunir Röskvu að eigna sér „frí­tt í­ Strætó“. Málið er þannig vaxið að Björn Ingi skrifaði grein þar sem hann lagði til að frí­tt yrði í­ strætó fyrir námsmenn þann 1. október 2005. Framsókn var með málið á stefnuskránni fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2006 (eins og raunar flest framboðin nema Sjálfstæðisflokkurinn held ég). Framsókn barði sí­ðan málið í­ gegn um meirihlutaviðræður í­ borginni fyrir rúmu ári sí­ðan. Allt þetta gerðist áður en Röskva fékk meirihluta í­ Stúdentaráði sem var í­ febrúar 2007.